Fréttir | 16. okt. 2019

Efnahags- og framfarastofnunin

Forseti tekur á móti háttsettum embættismönnum aðildarríkja Efnahags- og framfarastofunarinnar. Hópurinn hittist ár hvert til skrafs og ráðagerða í einhverju ríkjanna og í þetta sinn lá leiðin til Íslands. Á fundum embættismannanna er einkum rætt hvernig bæta megi stjórnsýslu aðildarríkjanna og auka líkur á að markmið um bættan hag náist í raun.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar