Fréttir | 14. nóv. 2019

Árnasafn

Forseti heimsækir Árnasafn í Kaupmannahöfn, skoðar handrit með leiðsögn handritafræðinga stofnunarinnar og kynnir sér nýlegar útgáfur hennar. Anne Jensen forstöðumaður og Jesper Kallestrup deildarforseti ræddu við forseta um framtíðarhorfur þess starfs sem unnið er á Árnasafni. Heimsókninni lauk með hádegisverði sem Henrik Wegener, rektor Kaupmannahafnarháskóla, bauð til.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar