Fréttir | 04. des. 2019

Samferða

Forseti tekur á móti fulltrúum góðgerðarsamtakanna Samferða, Rúti Snorrasyni og Örvari Þór Guðmundssyni. Samtökin veita þeim styrki sem á því þurfa að halda, í samráði við fagfólk. Öll vinna liðsmanna samtakanna er unnin án þóknunar. Þeir styrkir sem aflað er renna allir til hjálparstarfs, ekkert fer í umsýslu eða annað af því tagi. Jólasöfnun Samferða stendur nú yfir.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar