Fréttir | 18. des. 2019

Hringsjá

Forseti flytur ávarp og afhendir verðlaun við útskrift hjá Hringsjá. Þann stað sækir fólk sem þarf á náms- og starfsendurhæfingu að halda eftir hlé á námi eða vinnu vegna sjúkdóma, slysa eða annarra áfalla. Árangur af starfi þessa seturs er ótvíræður, fólki sem vinnur fyrir sér snarfjölgar eftir námið þar og þeim snarfækkar sem þurfa að reiða sig á örorku- eða endurhæfingarlífeyri.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar