Fréttir | 16. jan. 2020

Ferðasýningin Mannamót

Eliza Reid forsetafrú heimsækir ferðasýninguna Mannamót, sem haldin er árlega af markaðsstofum landshlutanna, þar sem landsbyggðarfyrirtæki í ferðaþjónustu koma til Reykjavíkur til að kynna þjónustu sína fyrir aðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu. Markmið sýningarinnar er að efla ferðaþjónustu og auka dreifingu ferðamanna um landið. Árið 2017 var forsetafrú útnefnd velgjörðarsendiherra sjálfbærrar ferðamennsku og sjálfbærrar þróunar hjá Ferðamálastofnun Sameinuðu þjóðanna.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar