Fréttir | 30. jan. 2020

Ráðstefna Festu

Forseti og forsetafrú eiga fund með forsvarsmönnum Festu - miðstöðvar um sjálfbærni og samfélagsábyrgð og fyrirlesurum á ráðstefnu sem félagið stendur fyrir, þeim Pablo Jenkins og Jaime Nach. Rætt var um vaxandi kröfur um sjálfbærni í rekstri fyrirtækja og að stjórnendur fyrirtækja finna í auknum mæli fyrir áhuga á umhverfisvernd ekki aðeins hjá stjórnvöldum, heldur einnig hjá starfsumsækjendum og viðskiptavinum. Einnig var bent á að upplýsingar um slæm umhverfisáhrif berast hratt milli manna á netinu sem getur skapað fyrirtækjum aukið aðhald.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar