Fréttir | 25. feb. 2020

Nýr sendiherra Andorra

Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Andorra, Gil Rossell Duschamps, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um samskipti Íslands og Andorra á sviði menningar og íþrótta, meðal annars á vettvangi Smáþjóðaleikanna. Þá var rætt um tengsl Andorra og annarra smáríkja á meginlandi Evrópu við Evrópusambandið og framtíðarhorfur í þeim efnum. Loks var rætt um áralanga reynslu Andorrabúa á sviði ferðaþjónustu.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar