• Forseti leggur hornstein stöðvarhúss Þeistareykjavirkjunar í september 2016.
Fréttir | 27. apr. 2020

Jarðhitaráðstefna

Forseti flytur ávarp við opnun alþjóðlegu jarðhitaráðstefnunnar World Geothermal Congress. Til stóð að halda hana í Reykjavík um þessar mundir en heimsfarsóttin kom í veg fyrir það. Þess í stað var boðað til minna þings sem haldið er með rafrænum hætti en stefnt að ráðstefnuhaldi á Íslandi að ári. Í máli sínu minnti forseti á þekkingu og reynslu Íslendinga við nýtingu jarðhita og nefndi jafnframt mikilvægi alþjóðasamvinnu á sviði vísinda og rannsókna.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar