Fréttir | 21. júní 2021

Sveinbjarnarstígur

Forseti vígir formlega nýjan útivistarstíg meðfram heimreiðinni að Bessastöðum, að forsetafrú viðstaddri. Viðburðinn sóttu einnig bæjarstjóri Garðabæjar, bæjarfulltrúar og embættismenn sveitarfélagsins, auk fulltrúa þeirra sem unnu að hönnun og gerð stígsins, Hornsteina, Loftorku, VSÓ og Verkís. Þá voru félagar úr Skokkhópi Álftaness með í för og tóku þeir stíginn formlega í notkun með því að hlaupa hann fram og til baka ásamt forseta. Stígurinn auðveldar fólki að ganga, hlaupa eða hjóla að Bessastöðum og Bessastaðanesi og eykur öryggi slíkra vegfarenda. Stígurinn nýi er kenndur við Sveinbjörn Egilsson, skáldið og þýðandann góðkunna og kennara við Bessastaðaskóla á fyrri hluta nítjándu aldar. Hann bjó að Eyvindarstöðum á Álftanesi og gekk þaðan til Bessastaða svipaða leið og stígurinn liggur nú um og var sá vegur oft illur yfirferðar.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar