Fréttir | 16. sep. 2021

Hugarafl og Boðaföll

Forseti og forsetafrú sækja útgáfuhóf bókarinnar Boðaföll í Ráðhúsi Reykjavíkur. Samtökin Hugarafl, notendastýrður félagsskapur fólks með reynslu af andlegum áskorunum, standa að útgáfunni. Fullt heiti verksins er Boðaföll, Nýjar nálganir í sjálfsvígsforvörnum. Höfundar eru Agla Hjörvarsdóttir, Fanney Björk Ingólfsdóttir, Harpa Sif Halldórsdóttir, Hrefna Svanborg Karlsdóttir, Sigurborg Sveinsdóttir og Svava Arnardóttir. Í bókinni er rætt um nýjar nálganir varðandi sjálfsvígsforvarnir og sjálfsskaða og er þar byggt á persónulegri reynslu höfunda.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar