Fréttir | 23. sep. 2021

Afmæli Borgarholtsskóla

Forseti sækir afmælishátíð Borgarholtsskóla í Reykjavík og flytur þar ávarp. Núverandi og fyrrverandi nemendur tóku einnig til máls auk annarra og nemar í tónlist og sviðslist létu að sér kveða. Borgarholtsskóli var stofnaður fyrir réttum aldarfjórðungi. Framboð í námi er þar fjölbreytt, iðnnám og bóknám, listnám og afreksíþróttasvið svo að helstu leiðir séu nefndar.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar