Forseti flytur ávarp á árlegum hátíðarfundi Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands. Í ár réðu sóttvarnir því að fundinum var streymt. Fræðslunetið – Símenntun á Suðurlandi og Háskólafélag Suðurlands stóð að venju að viðburðinum. Að þessu sinni fengu tveir vísindamenn styrk úr rannsóknarsjóðnum, þeir Marco Mancini fyrir rannsóknir sínar á hitakærum maurum á jarðhitasvæðum sunnanlands, og Stephen Hurling fyrir rannsóknir á lífi sjósvölu og stormsvölu við Vestmannaeyjar. Þá hlaut Magnús J. Magnússon, fyrrverandi skólastjóri Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri, Menntaverðlaun Suðurlands fyrir framlag til leiklistarstarfs meðal grunnskólanema.
Fréttir
|
13. jan. 2022
Vísindi á Suðurlandi
Aðrar fréttir
Fréttir
|
25. apr. 2024
Lýðheilsuverðlaunin 2024 afhent
Forseti afhendir Íslensku lýðheilsuverðlaunin í annað sinn
Lesa frétt
Fréttir
|
25. apr. 2024
Iceland Writers Retreat
Forsetahjón taka á móti þátttakendum ritlistarbúða.
Lesa frétt