• Arna Dís, Katla Sif, Jón Árni, Saadia Ennaji og Krummi ásamt forseta.
Fréttir | 17. mars 2023

Fjölbreytileikanum fagnað

Forseti tekur á móti mislitum sokkum í aðdraganda alþjóðadags Downs-heilkennisins, þann 21. mars. Markmið dagsins er að vekja jákvæða athygli á einstaklingum með Downs heilkenni, lífi þeirra og virkri þátttöku í samfélaginu. Hefð er fyrir því að klæðast mislitum sokkum á þessum degi til að fagna fjölbreytileikanum. Félag áhugafólks um Down-heilkennið kom af því tilefni færandi hendi á Bessastaði með sokkapör og boli handa forseta og forsetafrú.

Pistill forseta í tilefni alþjóðadags Downs-heilkennisins.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar