• Á Vatnajökli með Jöklarannsóknafélagi Íslands.
  • Á leið í Jökulheima með Jöklarannsóknafélagi Íslands.
  • Ekið upp á Grímsfjall í Vatnajökli.
  • Guðfinna Aðalgeirsdóttir, stjórnarmaður í Jöklarannsóknafélaginu, ásamt forseta við Grímsvatnaskála.
  • Snæbjörn Sveinsson ásamt forseta við tækjageymsluna í húsi Jöklarannsóknafélagsins á Grímsfjalli.
  • Grímsfjallaskáli í klakaböndum.
  • Garðar Briem ásamt forseta á Vatnajökli.
  • Við Pálsfjall á Vatnajökli.
  • Á Vatnajökli.
  • Kvöldverður í Jökulheimum, skála Jöklarannsóknarfélags Íslands.
  • Við skála Jöklarannsóknafélags Íslands í Jökulheimum.
Fréttir | 20. apr. 2024

Grímsfjall og Jökulheimar

Forseti heldur að Grímsvötnum í Vatnajökli ásamt liðsmönnum Jöklarannsóknafélags Íslands og fleiri fjallagörpum. Félagið var stofnað árið 1950 og er markmið þess að stuðla að jöklarannsóknum og ferðalögum á jöklum landsins. Starf félagsins byggir á samvinnu vísindamanna og sjálfboðaliða.

Gist var í Jökulheimum, skála félagsins í Tungnaárbotnum, en einnig haldið í hús þess á Grímsfjalli. Fræðst var um sögu félagsins og ferða á ökutækjum um hálendi Íslands og jökla. Þá fræddi Guðfinna Aðalgeirsdóttir, stjórnarmaður í Jöklarannsóknafélaginu og prófessor í jarðeðlisfræði við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands, forseta og föruneyti um eldvirkni undir Grímsvötnum og víðar á Vatnajökli.

Jöklarannsóknafélagið hefur frá árinu 1953 farið árlega vorferð í Grímsvötn og víðar um Vatnajökul þar sem mæld er vatnshæð Grímsvatna, vetrarákoma og fleira. Árlega er rituð samantekt um helstu verkefni vorferðar og birt í Jökli, tímariti félagsins. Vorferð Jöklarannsóknarfélagsins 2024 verður farin um mánaðamótin maí-júní.

Pistill forseta: „Grímsvatnahreppur"

Myndasafn frá ferð forseta á Vatnajökul.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar