Fréttapistill | 10. apr. 2024

Til hamingju með afmælið, Grindvíkingar!

Í dag var þess minnst að hálf öld er liðin frá því að sveitarfélagið hlaut kaupstaðarréttindi. Af því tilefni var boðað til hátíðarfundar bæjarstjórnar í Gjánni í Grindavík. Þar voru átta Grindvíkingar heiðraðir fyrir fórnfús störf í samfélagsþágu og ég flutti ávarp sem lesa má á vef forsetaembættisins.

Að fundi loknum héldum við Eliza svo í skoðunarferð um bæinn og gosstöðvar í grennd í fylgd með fulltrúum björgunarsveitarinnar Þorbjarnar. Ég dáist enn að elju og þrautseigju Grindvíkinga í þeim hremmingum sem yfir þá hafa dunið. Á það minntist ég í máli mínu og þakkaði jafnframt gestrisni þeirra og góðvild í öll þau skipti sem leið mín og míns fólks hefur legið í þeirra öfluga sveitarfélag.

Um leið og ég færði Grindvíkingum heillaóskir á merkum tímamótum, fyrir hönd okkar Íslendinga, lýsti ég þeirri von að saman gætum við tryggt þeim farsæla framtíð hvernig sem þessum náttúruhamförum vindur fram.

Birtist fyrst á facebook-síðu forseta 10. apríl 2004.

Frétt: Grindavík 50 ára

  • Á hátíðarfundi bæjarstjórnar Grindavíkur í tilefni af 50 ára afmæli bæjarins.
  • Ávarp á hátíðarfundi bæjarstjórnar Grindavíkur í tilefni af 50 ára afmæli bæjarins
  • Átta Grindvíkingar voru heiðraðir fyrir fórnfús störf í samfélagsþágu á 50 ára afmæli bæjarins.
  • Átta Grindvíkingar voru heiðraðir fyrir fórnfús störf í samfélagsþágu á 50 ára afmæli bæjarins.
  • Gosstöðvarnar í Sundhnúkagígsröð skoðaðar ásamt Fannari Jónassyni bæjarstjóra í fylgd Boga Adolfssonar og Otta Rafns Sigurðssonar, félaga úr björgunarsveitinni Þorbirni.
  • Gosstöðvarnar í Sundhnúkagígsröð skoðaðar ásamt Fannari Jónassyni bæjarstjóra í fylgd Boga Adolfssonar og Otta Rafns Sigurðssonar, félaga úr björgunarsveitinni Þorbirni.
  • Otti Rafn Sigmarsson, björgunarsveitarmaður hjá Þorbirni, sagði frá því hvar hraunið hætti að renna inn í byggð Grindavíkur.
Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar