Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Namibíu, George Mbanga Liswaniso, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um sameiginlega hagsmuni Íslands og Namibíu á alþjóðavettvangi og var sjónum einkum beint að mengun hafanna, plasti og öðrum úrgangi sem spillir lífríkinu. Þá var rætt um árangur Namibíumanna og frumkvæði í jafnréttismálum, og möguleika á samstarfi ríkjanna í þeim efnum. Loks var rætt um fiskveiðar undan ströndum Namibíu og framtíðarhorfur þar í þágu heimamanna.
![](/media/5509/sendih_namibiujpg.png?width=950)
Fréttir
|
29. okt. 2019
Sendiherra Namibíu afhendir trúnaðarbréf
Aðrar fréttir
Fréttir
|
26. júlí 2024
Sendiherra Danmerkur kveður
Forseti á kveðjufund með sendiherra Kirsten R. Geelan.
Lesa frétt
Fréttir
|
24. júlí 2024
Reykholt í Borgarfirði
Forseti tekur á móti starfsliði Snorrastofu.
Lesa frétt