• Forseti ræðir við Uchibori Masao, héraðsstjóra Fukushima í Japan.
  • Kynning á þróun vetnisframleiðslu í Fukushima.
  • Forseti ásamt bæjarstjóra Naime í Fukushima hérað.
Fréttir | 04. des. 2022

Fukushima

Forseti heimsækir héraðið Fukushima í Japan, í boði japanskra stjórnvalda. Gríðarmikið hreinsunar- og uppbyggingarstarf hefur farið fram í Fukushima eftir kjarnorkuslysið í Daiichi kjarnorkuverinu í mars 2011. Ráðstafanir vegna geislavarna eru enn miklar við kjarnorkuverið en þar eru nú einnig stundaðar rannsóknir á endurnýjanlegum orkugjöfum, aukinni jarðvarmanýtingu og framleiðslu vetnis.

Forseti átti fundi með Uchibori Masao, héraðsstjóra Fukushima, og ræddi við bæjarstjóra nokkurra sveitarfélaga héraðsins sem þurfti að rýma í hamförunum. Þeirra á meðal var bæjarstjóri Futaba þar sem fyrstu íbúar sneru fyrst aftur í ágúst á þessu ári, rúmum 11 árum eftir kjarnorkuslysið. Loks ræddi forseti við unga frumkvöðla sem vinna að þróun rafmagnsflygildis og dróna sem ætlaðir eru til aðstoðar við björgunarstörf.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar