Fréttir | 17. júní 2023

Orðuveiting

Forseti sæmir 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Þau eru:

1. Aðalgeir Egilsson bóndi, riddarakross fyrir framlag til veðurathugana og minjavörslu.
2. Árný Aurangasri Hinriksson kennari, riddarakross fyrir störf í þágu ættleiddra barna.
3. Davíð Ottó Arnar, yfirlæknir og prófessor, riddarakross fyrir framlag til hjartalækninga, vísindarannsókna og nýsköpunar.
4. Elínborg Lárusdóttir félagsráðgjafi, riddarakross fyrir störf í þágu blindra og sjónskertra.
5. Guðmundur Fylkisson lögreglumaður, riddarakross fyrir störf í þágu ungmenna og samfélags.
6. Guðrún Birna Gísladóttir, fyrrverandi forstjóri, riddarakross fyrir umönnun og þjónustu við aldraða.
7. Hafliði Már Aðalsteinsson skipasmíðameistari, riddarakross fyrir framlag til atvinnulífs, strand- og iðnmenningar.
8. Helgi Guðmundsson, prófessor emeritus, riddarakross fyrir framlag til menntunar og rannsókna á sviði íslenskra fræða.
9. Jóhanna Bergmann Þorvaldsdóttir bóndi, riddarakross fyrir frumkvöðlastarf í landbúnaði.
10. Jónatan Garðarsson fjölmiðlamaður, riddarakross fyrir dagskrárgerð og þekkingarmiðlun um dægurtónlist, nærumhverfi og skógrækt.
11. Kristín Jónsdóttir jarðskjálftafræðingur, riddarakross fyrir framlag til vísinda, miðlunar og náttúruvárvöktunar.
12. Lilja Hjaltadóttir, fiðluleikari og kennari, riddarakross fyrir framlag til tónlistaruppeldis- og menntunar.
13. Peter Weiss forstöðumaður, riddarakross fyrir frumkvöðlastarf á sviði menntunar.
14. Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri, riddarakross fyrir störf í þágu menningarmála og ferðaþjónustu.

Myndasafn frá orðuveitingunni.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar