• Ljósmynd/Ragnar Th
Fréttir | 13. sep. 2023

Forsetahjón í krýningarafmæli Svíakonungs

Forseti og forsetafrú halda á morgun til Stokkhólms og taka þar þátt í hátíðahöldum í tilefni 50 ára krýningarafmælis Karls XVI. Gústafs Svíakonungs. Karl Gústaf varð þjóðhöfðingi Svíþjóðar árið 1973 við andlát afa síns, Gústafs VI. Adolfs konungs. Krýningarafmælið sækja þjóðhöfðingjar allra Norðurlandanna.

Hátíðardagskráin hefst að kvöldi fimmtudagsins 14. september með sýningu í Drottningholm hallarleikhúsinu og kvöldverði í Drottningholm höllinni í kjölfarið. Að morgni föstudagsins 15. september sækja forsetahjónin messu í Slottskyrkan ásamt konungsfjölskyldunni og öðrum heiðursgestum og fylgjast að því loknu með hyllingu konungs frá svölum konungshallarinnar. Þá verður norrænum þjóðhöfðingjum boðið til hádegisverðar með sænsku konungshjónunum og Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar. Dagskrá krýningarafmælisins lýkur svo með hátíðarkvöldverði í konungshöllinni á föstudagskvöld.

Fréttatilkynning

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar