Ríkisheimsókn til Svíþjóðar 17.-19. janúar 2018
Ríkisheimsókn til Svíþjóðar 2018.
-
Carl Philip prins tekur á móti forseta við komuna til Arlanda flugvallar við upphaf heimsóknarinnar til Svíþjóðar. -
Forsetahjónum ekið í hestvagni að sænsku konungshöllinni. -
Nokkur barnanna sem buðu forseta velkominn í opinbera heimsókn til Svíþjóðar. -
Forseta ekið að konungshöllinni. -
Carl XVI Gustaf Svíakonungur og forseti Íslands kanna heiðursvörð við konungshöllina í Stokkhólmi. -
Forseti kynnir íslensku sendinefndina fyrir Svíakonungi. -
Forseti Íslands og Svíakonungur ávarpa fjölmiðlamenn í konungshöllinni. -
Forsetafrúin skoðar Bernadotte bókasafnið í sænsku konungshöllinni. -
Forseti ritar nafn sitt í gestabók sænska þjóðþingsins að forseta þingsins viðstöddum. -
Forseti ásamt gestgjöfum í sænska þjóðþinginu. -
Við komuna í Ríkisdaginn, sænska þjóðþingið, þar sem forseti átti fund með þingforseta og nokkrum þingmönnum. -
Forseti og Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, á leið til fundar í sænska stjórnarráðinu. -
Fundur forseta með Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar. -
Eliza Reid forsetafrú flytur fyrirlestur í borgarbókasafni Stokkhólms. -
Forseti ræðir við Silviu Svíadrottningu í hátíðarkvöldverði í konungshöllinni. -
Forsetafrúin ávarpar gesti á fundi Íslandsstofu um ferðamennsku á Íslandi. -
Forstjóri Karolinska Institutet ávarpar þjóðhöfðingja Íslands og Svíþjóðar og aðra góða gesti. -
Frá kynningarfundi um smíði fjölbýlishúsa og annarra stórra bygginga úr timbri. -
Forseti skoðar íbúð í fjölbýlishúsi úr timbri. -
Forsetafrúin heilsar barni við komuna í ráðhús Stokkhólmsborgar. -
Forsetahjónin og konungshjónin koma til hádegisverðar í ráðhúsi Stokkhólms. -
Borgarstjóri Stokkhólms ræðir við gesti sína í gyllta salnum í ráðhúsinu. -
Tignir gestir kvaddir í ráðhúsi Stokkhólmsborgar. -
Frá heimsókn forsetahjóna í listasafnið á Waldemarsudde. -
Forseti flytur fyrirlestur í stjórnmálafræðideild Stokkhólmsháskóla. -
Rektor Stokkhólmsháskóla þiggur gjöf úr hendi forseta við lok fundarins þar sem forseti flutti fyrirlestur. -
Sænsku konungshjónin koma til móttöku forsetahjóna ásamt syni sínum og tengdasyni. -
Forseti Íslands og drottning Svíþjóðar ásamt fleiri gestum í móttöku forsetahjóna í Moderna muséet. -
Carl XVI Gustaf Svíakonungur og Eliza Reid spjalla saman í Moderna muséet. -
Ari Eldjárn skemmtir gestum í móttöku forsetahjóna í Stokkhólmi. -
Upphaf heimsóknar í Landbúnaðarháskólann í Uppsölum. -
Anna Jansson segir frá rannsóknum sínum á úthaldi íslenska hestsins. -
Frá kynningarfundi í Ångström laboratoriet í Uppsölum. -
Frá móttöku í Uppsalaháskóla. -
Kórsöngvarar frá Vestur-Svíþjóð flytja tónlist í Uppsalaháskóla. -
Konungur og forseti skoða gjöf Uppsalaháskóla til forseta Íslands ásamt rektor skólans. -
Gestir komnir í bókasafn Uppsalaháskóla, Carolina Rediviva. -
Forsetahjón skoða Uppsala-Eddu, hið merka handrit Snorra-Eddu, sem varðveitt er í Uppsölum. -
Alice Bah Kuhnke, mennta- og lýðræðisráðherra Svíþjóðar, veitir íslensku fornsögunum viðtöku úr hendi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra. -
Forseti flytur ávarp og þakkar gestgjöfum í hádegisverðarboði landstjóra Uppsalaléns í Uppsalahöll. -
Kveðjustund í Uppsalahöll: íslensku forsetahjónin kveðja sænsku konungshjónin. -
Forseti kannar heiðursvörð við brottför frá Arlanda flugvelli.